Verkstæði

Verkstæði Kría Hjól er staðsett á Grandagarður 7, 101 Reykjavík. Við bjóðum uppá faglega viðhaldsþjónustu fyrir allar gerðir reiðhjóla. Allar almennar viðgerðir og skipti á aukahlutum á reiðhjól er að kosta 6,000kr klukkutíminn. Einnig bjóðum við uppá tvo staðlaða þjónustu pakka, eins bjóðum við uppá að teina upp gjarðir.

Þjónusta 1 - 6,000kr

Er almenn yfirferð á reiðhjólinu, við sjáum til þess að allt virki svo þú getur notið þess að hjóla á hjólinu þínu frá degi til dags og við mælum með að þú mætir með hjólið þitt á 6 mánaða fresti í þessa þjónustu, hún inniheldur:
Þurkað af stelli og gaffli
Nöf, gjarðir og dekk athuguð
Gjarðir eru réttar og teinar settir í rétta spennu
Headsett og bottom bracket er athugað
Bremsur stilltar 
Keðjan er smurð
Gírar liðkaðir og stilltir


*Ath, allir varahlutir eru ekki innifaldir í verði

Þjónusta 2 - 15,000kr

Þetta er alsherjar yfirhalning á hjólinu þínu og ætti að vera gerð einu sinni á ári. Hjólið er allt tekið í sundur, þrifið og smurt að nýju, hún inniheldur alla vinnuna í þjónustu 1 plús:
Stell og gaffall hreinsaðir, skemmdir og slit kannað
Allar gengjur í stelli hreinsaðar og smurðar að nýju
Nöf tekin í sundur, hreinsuð, könnuð og smurð að nýju
Headsett tekið í sundur, þrifið og smurt að nýju, slag í legum athugað
Allir aðrir partar, teknir í sundur, þrifnir, slit kannað og smurt að nýju


*Ath, allir varahlutir eru ekki innifaldir í verði

Wheelbuilding/Gjarðasmíði - 6,000kr hver gjörð, gjarðahringir, nöf og teinar ekki innifaldir

Kría handsmíðar/teinar öll þau gjarðasett sem fara undir custom hjólin okkar, og við teljum það vera afar mikilvægt þegar gera á upp gömul hjól að láta teina upp nýjar gjarðir. Hvort þú þurfir að láta skipta um gjarðahring eða naf þá bjóðum við einnig uppá þá þjónustu.

Að teina upp gjarðir, nýjar eða gamlar er vandasamt verk, og við gefum tíma í hverja gjörð, til þess að sjá til þess að teinar séu í réttri spennu, ekkert kast og að gjörðin rúlli rétt. Við notumst einungis við stainless stál teina frá belgíska framleiðandanum Sapim. Við fullvissum þig að þú munnt ekki verða fyrir vonbrigðum með gjarðirnar okkar, og því bjóðum við uppá ókeypis réttingu á þeim og jafnframt bjóðum við þér að skipta út teinum ef svo vill til að þeir hafi slitnað við eðlilega notkun.

© 2011 Kría hjól | Admin