Verslun

Nýverið fluttum við í stærra húsnæði þar sem Kría Hjól er ekki aðeins með fullbúið verkstæði þá höfum við einnig opnað verslun og sýningarsal. Við erum með úrval af hjólum og aukahlutum til sölu og sýnis, þar með talið hjól og búnaður frá Specialized, Brooks hnakkar, töskur og aukahlutir, BLB aukahlutir, Velocity gjarðasett. Einnig mun þar finna sýnishorn af custom hjólunum okkar, ýmist fullkláruð eða í vinnslu.

Verslunin er ekki hefðbundin hjólabúð og hún er tvískipt, annars vegar er svæði þar sem þú getur komið og fengið upplýsingar um custom hjól og uppgerðir á gömlum hjólum, og hins vegar er specialized rýmið. Vertu velkomin í heimsókn, við erum meira en til í að ausa úr hjólaviskubrunni okkar og svara spurningum ykkar varðandi hjól og hjólreiðar af öllum sortum.

Hvort sem þú elskar verslunina okkar eða hatar, þá munt þú muna eftir henni!

© 2011 Kría hjól | Admin